miðvikudagur, 22. febrúar 2012

Með betri dómgæslu, fáum við betri handbolta.

Hvað þarf að gera ?

Bæta starfsumhverfi dómara,  þar sem stærsti þátturinn er að bæta framkomu leikmanna og starfsmanna gagnvart dómurum, en ekki síst framkomu forráðamanna og foreldra krakka í yngri flokkum.

Það fæðist enginn sem dómari og því þurfa þeir að fá tækifæri til að vaxa og verða betri,  og það gera þeir ekki nema með því að dæma leiki, hvort sem það er í mótum eða á æfingum hjá sínu félagi. 

Allir gera mistök það vitum við öll,  því miður eru til dæmi þar sem framkoma þjálfara, forsvarsmanna liða og foreldra hafa verið þannig að ungir dómarar hafa ekki fengist í störfin aftur eftir slíka útreið.  Slík framkoma gagnvart dómurum er alls ekki afsakanleg en hendir því miður allt of oft  í hita leiks og vonandi ávallt að vanhugsuðu máli. Rétt er að hafa í huga að dómari hefur annað sjónarhorn og yfirleitt betra  en sá sem situr uppi í stúku og "dæmir þaðan".

Leikmenn á vellinum eru yfirleitt til fyrirmyndar, en þegar þjálfari eða forráðamenn á pöllum byrja að tuða í dómurum og láta stór orð fallla sem eru hvorki þeim né félagi til sóma,  þá fyrst hætta sumir leikmenn að spila bolta og áherslan fer í það sama og fyrirmyndirnar eru að gera og leikurinn verður aukaatriði.

Dæmi eru um að það hafi þurft að stoppa leik tímabundið og vísa áhorfendum út úr húsi til að hægt væri að ljúka leik,  það er ekki til fyrirmyndar, hvorki fyrir liðið á vellinum og því síður þá forráðamenn sem áttu hlut að máli.

Munið að þið áhorfendur eruð fyrirmyndir, hagið ykkur samkvæmt því og berum virðingu fyrir leiknum,   því hver veitir dómurum áfallahjálp þegar búið er að leggja þá í einelti í gegnum heilan leik?

Hvað getum við gert til að bæta þetta hjá okkur í dómaraakademíu ÍR?
  • Siðareglur fyrir dómara, foreldra, leikmenn og stjórnarmenn verða kynntar á foreldrafundum flokka, þær fara einnig á vef og upp á vegg í íþróttahúsinu okkar.
  • Bætt umgjörð, ábyrgur aðili sem sér um dómaramál hjá félaginu og sér um dómarana í yngri flokkunum gagnvart foreldrum áhorfendum og þjálfurum.
  • Þjálfarar hvattir til að kalla til dómara á æfíngar og láta þá dæma æfingaleiki.
  • Nýir dómara verða settir með reynslumeiri til að þjálfa þá upp, því það fæðist sem enginn dómari.
  • Reynslumeiri dómarar mæta á leiki og veita yngri dómurum aðhald og tilsögn við verklega þætti dómgæslunnar.
  • Leyfum dómurum að dæma leikinn og gefið þeim svigrúm til að sýna sitt besta.
  • Við viljum ekki sjá neitt sem kallast "heimadómarar" hjá okkur, það eru reglur og það á að fara eftir þeim og dæma báðum megin.
  • Aðeins einn hefur leyfi til að setja út á dómgæslu innan skynsemismarka og það er þjálfarinn, liðin inni á velli eiga að einbeita sér að því að spila handbolta. 
  • Bestu dómararnir "sjást ekki" í leik nema þegar brotið er á leikmanni,  þá á flauta þeir hátt og eru með skýrar og ákveðnar bendingar.
  • Gerið alltaf ykkar besta, verið félaginu til fyrirmyndar, verið snyrtileg,  í dómaratreyju og svörtum íþrótta- eða stuttbuxum.
  • Og það mikilvægasta af öllu verið tilbúin og hafið gaman af þessu.
     
     

Dómaraakademía ÍR Handbolta

Engin ummæli:

Skrifa ummæli