fimmtudagur, 29. mars 2012

Fjölgar í Dómaraakademíu ÍR Handbolta þar sem 31 A-stigs dómarar sem fóru í dómaraprófið í feb.voru útskrifaðir á dögunum og fá skírteini afhent í kvöld.

Skirteinin eru komin í hús fyrir þá sem voru á A-stigs dómaranámskeiði HSÍ í feb. og mun Siggeir dreifa þeim á leiknum í kvöld hjá 3 kk kl 20:20 í Austurbergi.
En fyrir þá sem ekki komast á leikinn ...."þá er ég með þetta á mér öllum stundum allann sólahringinn og þið getið nálgast skirteinin hjá mér" eins og hann komst að orði.  Og við höfum það fyrir víst að það ætti að vera auðvelt að nálgast hann í Austurbergi næstu vikur þar sem verkefni okkar er nú komið á fullt og Dómaraakademían kemur þar vonandi sterk inn í hin ýmsu verkefni og aðstoðar verkstjóra í því verkefni.

Þetta er því flottur hópur sem við erum með sem sér um dómgæslu hjá ÍR Handbolta, alls eru nú 59 A-stigs, 12 B-stigs og 8 C-stigs dómarar hjá okkur.  Stórglæsilegur hópur og skemmtilegur félagsskapur sem gaman er að vera hluti að enda snýst þetta um margt annað heldur en bara að dæma á mótum þar sem m.a. hittingar, grill og ýmis verkefni sem stuðla að því að gera handboltastarfið hjá ÍR enn þá betra eru á stefnuskrá Dómaraakademíu ÍR Handbolta.  

Við hvetjum alla sem hafa áhuga á því að taka þátt í starfinu að hafa samband á netfangið irhandboltinn@gmail.com og fá þannig uppfærslu á því hvenær næsta námskeið HSÍ verður haldið.
Tveir flottir meðlimir í  Dómaraakademíu ÍR Handbolta og Barna- og Unglingaráði í Austurbergi í kvöld ,
 Aðalsteinn ( Steini ) afhendir Siggeir sitt A-skírteini.


mánudagur, 19. mars 2012

ÍR dómarar stóðu sig vel á ÍR-Móti um helgina.

Dómarar hjá ÍR stóðu sig vel síðustu helgi 16-18. mars á ÍR-Móti 5.fl. kvenna yngri í Austurbergi og Seljaskóla. Nánast 100%  mæting. Sumir dæmdu fleiri leiki en aðrir og þess má geta að öðrum ólöstuðum að Siggi Villi stóð sig frábærlega vel og dæmdi um 16 leiki á mótinu. ÍR er búið að fá mikið hrós fyrir mótið og stór hluti þess að allt gangi upp er að eiga að svona flotta ÍR-inga sem eru tilbúnir í dómgæslu.

Steini og Siggeir
Róbert að sýna hvernig á að dæma "fót"
Róbert Hnífsdal
Sólveig DÓMARI
Róbert fylgist grannt með!
Einar að setja línurnar!
Einar, einbeittur
Guðrún að segja öllum að koma?
Siggi Villi 16leikjadómarinn
Guðrún og Sólveig
Ágúst og Heimir
Dómara elítan í baksýn!
Siggeir og Hrafn
Runi C-domari/formaður
Róbert og Andri
Siggeir og Steinþór
Dómararnir þakka HK og ÍR fyrir leik
Steinþór einn sá reffilegasti á vellinum
Siggeir í góðum gír
Hilmar dómari og þjálfari á góðri stund


Fleiri myndir inn á ÍR Mótin

miðvikudagur, 14. mars 2012

Málþing um íþróttadómara í E-sal Íþróttamiðstöðvarinnar í Laugardal miðvikudaginn 21. mars 2012 kl. 17.00-20.00.

Kæru meðlimir í Dómaraakademíu ÍR

ÍSÍ, KSÍ, HSÍ, KKÍ og BLÍ boða til málþings um íþróttadómara miðvikudaginn 21. mars næstkomandi í E-sal Íþróttamiðstöðvarinnar í laugardal.

Á þinginu verður fjallað um íþróttadómara og þeirra mikilvægu störf í tengslum við íþróttirnar.  Fulltrúar sérsambandanna munu fjalla um stöðu mála og framtíðarhorfur.  Málþingið er öllum opið, endurgjaldslaust á meðan húsrúm leyfir.  Allir sem áhuga hafa á þessum málum eru hvattir til að mæta, fræðast um stöðuna og leggja jafnvel orð í belg um málefnið.

Skráning er í síma 514-4000 eða á linda@isi.is  Í boði verður kaffi og léttar veitingar.

Allar frekari uppl. gefur sviðsstjóri Þróunar- og fræðslusviðs ÍSÍ í síma 460-1467 eða á vidar@isi.is

Við hvetjum alla til að mæta og taka þátt.



 
Með bestu kveðju,
Dómaraakademía ÍR Handbolta

fimmtudagur, 8. mars 2012

Dómara-Skráning á mót 5.fl. kvenna yngri 16.-18. mars.

Dómara-Skráning
Háttvirtu dómarar! 
Nú vantar ykkar aðstoð þar sem ÍR heldur sitt síðasta mót á þessi tímabili í Austurbergi og Seljaskóla helgina 16.-18. mars n.k. Þetta er fjórða íslandsmeistaramótið af fimm hjá 5. flokk kvenna yngri. >Dómara-Skráning<

Nýbakaðir dómarar úr dómaranámskeiði HSÍ!
Þetta er upplagt tækifæri til þjálfunar, eiginlega bara nauðsynlegt að mæta og dæma nokkra leiki. Ef þið eruð óviss með hvenær þið getið dæmt eða viljið fá að dæma með vönum (vanari) dómara þá skráið þið ykkur á þar til merktan stað og það verður haft samband við ykkur. Koma nú og vera með, skráið ykkur allavega á einn leik. >Dómara-Skráning<

Og að sjálfsögðu fá dómarar næringu eftir dæmda leiki í formi samloku og svala.